Föstudagur 2. júlí.
Kl. 16:00 Golfmót á Syðridalsvelli. Boðið verður upp á 9 holu golfmót. Leikið verður með Greensome fyrirkomulagi,. Ræst verður út af öllum teigum kl. 16:00. Skráning á golf.is og hjá Gunnu Gumma Hafsa í síma: 861-7527
Kl. 20:30 Mæting í skrúðgöngu. Efri bær hjá Holtabrúnarblokkinni neðri bær á túninu bak við Einarshús. Allir landsmenn velkomnir !
Minni á að hægt er að kaupa blöðrur og annað til að skreyta húsin sín í Samkaupum og Bjarnabúð!
Kl.21:00 Brekkusöngu með Benna Sig. Í gryfjunni við Hreggnasa.
Laugardagur 3. júlí.
Kl.09:00 HSB ætlar að ganga á Ekkjuskarð-Gengið verður upp með póstkassa, ásamt nýrri gestabók. Milli Tungudals og Syðridals er Ekkjuskarð í rúmlega 500m hæð, hvetjum við sem flesta til að mæta og byrja daginn á góðri göngu .Lagt verður af stað frá "Gulu-búð" upp- eða þar sem hún stóð áður ;-) upp á Hanhólsholtum í Syðridal.
Kl. 13:00 Skemmtidagskráin á hátíðarsvæðinu bak við Grunnskólann:
Hljómsveitin Rósin okkar
Þjóðlagahljómsveit.
Stelpurnar hans Hermanns
Unglingarhljómsveit frá Bolungarvík
Óminnishegrar
Hljómsveit ungra pilta frá Ísafirði
Lilja og Bryndís
Spila bæði frumsamin og eftir aðra flytjendur.
Þröstur Jóhannesson
Spilar lög af væntanlegri plötu
Elsa Trausta og Bjarni Kristinn
syngja og spila eins og þeim einum er lagið
Sigríður Magnea og Þórunn Emma
sýna okkur samkvæmisdansa.
Buffið
Fáum smjörþefinn af því sem koma skal á ballinum um kvöldið.
Kl. 23:00 – 03:00 Dansleikur
Stórdansleikur með Buffinu í íþróttahúsinu Árbæ. 18 ára aldurstakmark. Miðaverð 2500kr.



.jpg)