Grunnskóli Bolungarvíkur auglýsir 100% starf stuðningsfulltrúa
við skólann. Um er að ræða afleysingarstarf til eins árs.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf fljótlega.
Helstu verkefni og ábyrgð
Stuðningsfulltrúi fylgir og styður fjölfatlaðan einstakling á
tímabilinu 08:00 – 16:00 alla daga vikunnar og gætir velferðar
hans í hvívetna meðan á skólatíma stendur. Stuðningsfulltrúi
vinnur í nánu samstarfi við umsjónarkennara og ekki síst við
foreldra einstaklingsins.
Hæfnikröfur
Mikilvægt er að umsækjandi hafi til að bera jákvætt og gefandi
viðmót, góða samskiptahæfni og áhuga á börnum. Æskilegt er að
viðkomandi eigi að baki stuðningsfulltrúanám eða reynslu á sviði
umönnunar.
Laun og launakjör
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og
viðkomandi stéttarfélags.
Áhugasamir vinsamlegast skilið atvinnuumsókn á bæjarskrifstofu
eða á netfang skólastjóra sem einnig veitir fúslega upplýsingar í
gegnum tölvupóst: sossa@bolungarvík.is
Umsóknarfrestur er til 1. ágúst 2010.
Skólastjóri



.jpg)