Markaðsdagurinn í Bolungarvík
Markaðsdagurinn í Bolungarvík hefur vaxið stórkostlega s.l. ár og er nú orðinn einn af stærri menningar-viðburðunum hér vestra á hverju sumri.
Markaðsdagurinn er haldinn fyrstu helgina í júlí, ár hvert.
Vel á 2000 manns hafa mætt á markaðstorgið s.l. 2 ár og ljóst að fjöldinn á enn eftir að aukast ef fram heldur sem horfir. Markaðsdagurinn er blanda af öflugu markaðstorgi, yfirgripsmikilli tónlistar- og fjölskylduskemtun, auk fjölbreyttra leiktækja fyrir krakka á öllum aldri. Það er samdóma álit þeirra gesta sem sótt hafa Markaðsdaginn heim, hingað til, að hann hafi tekist einstaklega vel upp, og sé sannarlega í sérflokki. Jafnframt hafa þeir aðilar sem hafa verið með sölubása á markaðstorginu, snúið heim með bros á vör, og margir selt upp allan varning sinn.



.jpg)