Fréttir

Endurskoðun skólastefnu Bolungarvíkur

Hafin er endurskoðun á skólastefnu Bolungarvíkur sem gildir árin 2020-2025. Fræðslumálaráð ber ábyrgð á að stefnan verði endurskoðuð og ráðgjafi frá Ásgarði skólaráðgjöf heldur utan um verkefni ráðsins með það að markmiði að ná breiðri samstöðu um stefnumótunina og skýra framtíðarsýn í mennta- og uppeldismálum sveitarfélagsins. 

Stýrihópinn skipa: 

Fræðslumála- og æskulýðsráð:

  • Guðlaug Rós Hólmsteinsdóttir (K), formaður
  • Gunnlaugur Gunnlaugsson (K) 
  • Monika Gawek (K) 
  • Þorbergur Haraldsson (D) 
  • Karitas S. Ingimarsdóttir (D) 


Varamenn 

  • Anna Godlewska (K) 
  • Magnús Traustason (K) 
  • Halldór Guðjón Jóhannsson (K) 
  • Anna Magdalena Preisner (D) 
  • Trausti Salvar Kristjánsson (D) 

 

Helstu verkefni stýrihóps: 

  • Greining og mat á framgangi skólastefnu frá 2020. 
  • Móta nýja framtíðarsýn, stefnu og innleiðingaráætlun. 
  • Forgangsröðun aðgerða við innleiðingu stefnunnar. 
  • Víðtækt samráð við stjórnendur, starfsfólk, nemendur, foreldra, kjörna fulltrúa, aðra hagsmunaaðila og íbúa um mótun stefnunnar. 


Áætlað er að ný stefna verði tilbúin fyrir lok árs 2025. 

Frekari upplýsingar um verkefnið veitir Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson ráðgjafi í Ásgarði skólaráðgjöf með netfangið gunnthor@ais.is eða í síma 699-1303. 

Með von um gott samstarf og góða þátttöku. 
Fræðslumálaráð Bolungarvíkur


Fréttir

    Enginn Skjalaflokkur er tengdur.

Fréttir

    Enginn Skjalaflokkur er tengdur.