Bolungarvíkurkaupstaður hefur birt nýja menntastefnu sveitarfélagsins sem nær til leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla. Stefnan er leiðarvísir fyrir allt mennta- og uppeldisstarf í sveitarfélaginu og var unnin í samráði við skólasamfélagið og íbúa.
Í stefnunni er lögð áhersla á að efla framsækið og faglegt skólasamfélag þar sem samvinna, fagmennska og víðsýni eru í forgrunni. Markmiðið er að mæta fjölbreyttum þörfum barna og ungmenna og styðja við stöðuga þróun skólastarfs í takt við áskoranir samtímans.
Megináherslur menntastefnunnar:
- Samvinna og faglegt starf
- Jöfn tækifæri og inngilding
- Persónumiðað nám og vellíðan
- Framtíðarhæfni og nýsköpun
- Samþætt þjónusta og snemmtækur suðningur
- Fagmennska, starfsþróun og innra mat
Með menntastefnunni er lagður grunnur að öflugu og samfelldu skólastarfi þar sem börn og ungmenni fá tækifæri til að þroskast og búa sig undir þátttöku í samfélagi framtíðarinnar.
