Þrettándagleði í Bolungarvík
Á þrettánda dag jóla er haldin hin árlega þrettándagleði Bolungarvíkurkaupstaðar og Ísafjarðarbæjar.
Á þrettándagleðina koma álfar og kóngafólk, prinsar og prinsessur, stallari, biskup og skratti, bændafólk, álfameyjar, ljósálfar og svartálfar, jólasveinar, púkar og Grýlu-börn og svo auðvitað Grýla sjálf með Leppalúða sínum.
Dans verður stiginn og söngvar sungnir við hljóðfæraspil og þrettándabrennu svo sem vera ber á þrettándanum.
Hátíðarsvæðið er við Hreggnasa fyrir ofan Grunnskóla Bolungarvíkur og heilsugæslustöðina og hefst hátíðin kl. 20:00 föstudaginn 6. janúar 2017.
Löng hefð er fyrir því að þrettándagleðin endi á flugeldasýningu sem Björgunarsveitin Ernir í Bolungarvík stendur fyrir.
Sveitarfélögin skiptast á að halda þrettándagleði og í ár er þrettándagleðin haldin í Bolungarvík.